Fossvogsskóli

  • Stækka letur
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka letur

Heimsókn í Árbæjarsafnið

Senda tengil Prenta

P1000986

 

1. febrúar   fór hópur 10 í heimsókn í Árbæjarsafnið. Sigurlaugur  tók á móti nemendunum og   sýndi þeim gamla býlið,  Árbæ. Þar skoðuðu þau baðstofuna,  hlóðaeldhúsið  og fjósið.  Hann  sagði þeim frá gamla bændasamfélaginu, matargerð, tóvinnu o.fl. Hann sýndi þeim ýmis áhöld sem notuð voru við heimilisstörf áður fyrr.

Sjá fleiri myndir

 

Síðast uppfærsla: þriðjudagur, 07 febrúar 2012 12:44
 

Salur hjá hópi 8

Senda tengil Prenta

Föstudaginn  3. febr. var hópur  8  með sal.  Dagskráin var fjölbreytt. Nemendur léku á hljóðfæri, fluttu leikþætti, sungu, dönsuðu og sögðu brandara. Að lokum kom allur hópurinn á svið og dansaði partýpolka. Allir stóðu sig mjög vel í hlutverkum  sínum  og áhorfendur voru til sóma. Það voru því glaðir nemendur sem héldu heim í helgarfrí.

P1020229 P1020244 P1020236
Síðast uppfærsla: föstudagur, 03 febrúar 2012 14:41
 

Fundur

Senda tengil Prenta

 Fundur í Fossvogsskóla (Vesturlandi) fimmtudaginn 2. febrúar kl. 20

Bryndís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SAMFOK heldur erindi og síðan verður hópavinna. Rætt verður  um jákvæð samskipti, bekkjaranda og skólabrag og hvað við foreldrar getum gert til að leggja okkar af mörkum til að fyrirbyggja einelti.

Einelti er samfélagsvandamál og ekki eingöngu á færi skólans að leysa. Hér verða foreldrar, heimilin og samfélagið allt að leggja sitt af mörkum. 

Tökum höndum saman og látum okkur varða hag og líðan barnanna í okkar skóla.

Foreldrafélag Fossvogsskóla

 

Fjöltefli

Senda tengil Prenta

 Fimmtudaginn 26. janúar var Skákdagurinn haldinn hátíðlegur um allt land en hann er haldinn til heiðurs Friðriki Ólafssyni, fyrsta stórmeistara Íslands í skák. Í Fossvogsskóla tefldi Magnús Pálmi Örnólfsson skákkennari skólans fjöltefli við nemendur.

 

 

 

 

Síðast uppfærsla: fimmtudagur, 26 janúar 2012 16:37
 

Umhverfisráð

Senda tengil Prenta

P1020002

 

Þessi flotti hópur er í Umhverfisráði Fossvogsskóla. Þau héldu sinn fyrsta fund á þessu ári 12. janúar.

Lesa má fundargerðina hér.

Síðast uppfærsla: fimmtudagur, 26 janúar 2012 11:21
 


Síða 1 af 94

Veðrið

Mostly CloudyMostly Cloudy (36oF • 2oC)
Humidity: 87%
Wind: E at 5 mph
Wed 28 - 41 oF » Chance of Rain «
Thu 32 - 41 oF » Chance of Rain «
Fri 34 - 41 oF » Chance of Rain «

Matseðill


Miðvikudagurinn 08.02.2012
Hádegismatur: Þorramatur. Súpa og brauð. Salatvagn

Heilsueflandi Fossvogsskóli

Heilsuskolar_taknAAA_150

 __________________________

 

logo-VGE-stondum_saman


Innskráning